top of page

Staðirnir okkar

Hér eru upplýsingar um nokkra staði sem við förum á.

Fjaðrárgljúfur

Fjaðrárgljúfur er um 100 metra djúpt og tveir kílómetrar að lengd. Gljúfrið er stórbrotið, veggbratt, hlykkjótt og örlítið þröngt. Í gljúfrinu er að mestu móberg frá kuldaskeiðum ísaldar og gljúfrið er talið vera um tveggja milljóna ára gamalt. Göngumenn geta gengið inn í gljúfrið og vaða alloft eða ganga eftir göngustíg uppi á gljúfurbarminum. 

Jökulsárlón

Jökulsárlón er stórt lón og á því fljóta gríðastórir ísjakar um en umhverfið markast af svörtum söndum og grjóti. Í lóninu, sem Vatnajökull gengur út í, gætir flóðs og fjöru og er því blanda af sjó og ferskvatni. Selir og æðafuglar sækjast í ætið sem gengur inn í lónið. Lónið er gríðarlega djúpt eða um 190m og stærð ísjakanna ofan vatnsborðs er mikil. Breiðamerkurjökull og Breiðamerkursandur eru rétt hjá.

Mývatn

Mývatn er fjórða stærsta stöðuvatn Íslands. Vatnið er 37 ferkílómetrar og í því eru um 50 eyjar og hólmar. Mývatn er mjög grunnt og sólarljós nær alls staðar í botn vatnsins. Í Mývatni er mikill vöxtur og viðgangur vatnaþörunga og lífríkið er ákaflega fjölbreytilegt og merkilegt. Á botninum er mikið af kísilþörungaskeljum og ofar syndir hin alþekkta Mývatnsbleikja innan um vatnagróður og á bökkum vatnsins og í hólmum vex safaríkur gróður. Í Mývatni er hægt að finna afbrigðilegt vaxtarafbrigði af grænþörungategundinni Aegagropila linnaei. Þetta fyrirbæri heitir á íslensku kúluskítur en það finnst bara í fáum stöðuvötnum á jörðinni, þau helstu eru Mývatn og í Akanvatni á Hokkaido í Japan. Allar kúlurnar eru svipað stórar, eða um 10-15 cm í þvermál. Það er enn ekki vitað hvernig kúlurnar verða til né hversu gamlar þær eru. Kúlurnar eru algrænar alveg í gegn en það er frekar óvenjulegt. Græni liturinn stafar þó af grænukornum sem eru nauðsynleg fyrir ljóstillífun sem á sér stað á yfirborði flest allra plantna sem fá næga birtu. Þeir plöntuhlutar sem ekki fá birtu sölna en það á þó hinsvegar ekki við um kúluskítinn.

Reykholt

Fosshótel Reykholt er rómantískt hótel í Borgarfirði og býður upp á fjölbreytta aðstöðu fyrir ráðstefnur, fundi og aðrar viðburði. Fosshótel Reykholt stendur á sögulegum slóðum og er einungis í nokkurra mínútna fjarlægð frá Krauma, Deildatunguhver, Hraunfossum og Húsafelli. Á hótelinu er einnig að finna glæsilegan veitingastað.

Vatnshellir

Hraunhellirinn er 8000 ára en hann nær 200 metra upp og fer 35 metra undir yfirborðið. Hellirinn myndaðist eftir eldgos úr nærliggjandi gíg í Purkhóla-gígfjölskyldunni. Þegar hraunið rann niður hæðina byrjaði það að kólna á yfirborðinu en það myndaði jarðskorpu ofan á hrauninu. Þegar gosið hætti hélt hraunið áfram að renna undir þessari skorpu. Að lokum var eftir hálfgert rör með þaki sem kólnaði með tímanum.

Hellulaug

Hellulaug er er 60 cm djúp og hitastig vatnsins er um 38 gráður en laugin er jarðhituð. Jarðhitavatnið kemur frá borholu fyrir ofan laugina. Laugin er alltaf opin og ekkert kostar inn en hins vegar er krukka við bílastæðið sem hægt er að skilja pening eftir í.

Dynjandi

Dynjandi er stærsti foss á Vestfjörðum og er oft  kallaður gimsteinn Vestfjarða. Dynjandi hylur um 1000 metra og lítur mjög út eins og slör. Efst er fossinn þó aðeins 30 metra breiður en breikkar þó allt að 60 metrum neðst. Það eru 6 aðrir  fossar fyrir neðan Dynjandi en þeir liggja allir að stæsta fossinum. Til að komast að Dynjandi þarf að labba smá, ekki meira en 15 mínútur, og á leiðinni upp er hægt að skoða alla litlu fossana.

Fylgstu með okkur! @allinclusiveiceland

bottom of page